Posted on apríl 27, 2005 by eyrun
Já, ég get ekki orða bundist. Ég vaknaði snemma og hjólaði í blíðskaparveðri og vaknandi sumri upp í Sólheimasafn sem er næsta bókasafn í nágrenninu. Þar þurfti ég að glugga í nokkrar bækur (jú, í sambandi við ritgerðina) – Ég hafði í raun hlakkað svolítið til að fara og sitja í þögninni innan um allar [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Leave a Comment »
Posted on apríl 21, 2005 by eyrun
Þegar ég hugsa um sumardaginn fyrsta hugsa ég, örugglega ólíkt öðrum Íslendingum, um sumar og sól, en ekki rigningu og haglél.
Sumardagurinn fyrsti minnir mig á snú-snú-bönd, brennibolta og teygjutvist.
Maður er víst orðinn of gamall til að fá sumargjafir af því taginu, því miður. Því það voru sko ekta sumargjafir!
Sumarið leggst nú samt alveg ágætlega í [...]
Flokkað undir: Spil og leikir | 1 ummæli »
Posted on apríl 17, 2005 by eyrun
Hinn mesti viðburður á ári hverju er auðvitað Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem verður haldin í Kænugarði (Kiev) í Úkraínu í ár, fimmtudaginn 19. og laugardaginn 21.maí næstkomandi.
Það er kominn Eurovision-fiðringur í mig eins og ég fæ alltaf um þessar mundir; þetta fylgir vorinu…
Ég legg því til að allir sem vettlingi geta valdið fari inn á [...]
Flokkað undir: Eurovision | 1 ummæli »
Posted on apríl 15, 2005 by eyrun
Hvað segið þið þá? Héðan af Langholtsveg City er bara allt í gúddí… við erum bara eiturhress eins og venjulega…
Ég hef ákveðið að taka skipulagsfríkunina mína á annað level og plana nú svoldið fram í tímann svona, ekki seinna vænna. Það sem liggur fyrir sem sagt núna á allra næstu vikum og mánuðum er:
1. Skila [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | 1 ummæli »
Posted on apríl 1, 2005 by eyrun
Jæja, þá er þetta tímabil að koma enn einu sinni. Það magnaða við próftíðina er það að um leið og fyrsta prófið gengur í garð, losna öll höft og hömlur sem festa mann niðri í hinum gráa hversdaglega lífi. Allt í einu vakir maður allar nætur, sefur í klukkutíma og klukkutíma um miðjan dag, borðar [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | Leave a Comment »