Ætli mér hafi tekist að breyta þessu, er nú ekki alveg sú sterkasta í þessum málum…
Flokkað undir: Tölvur og tækni | 1 ummæli »
Ætli mér hafi tekist að breyta þessu, er nú ekki alveg sú sterkasta í þessum málum…
Flokkað undir: Tölvur og tækni | 1 ummæli »
Nú er draumurinn minn að rætast… verð að sjá þessa – Ég hef dáð þessar bækur frá unga aldri, hvað sem öllum kristnum prédikunum líður… og hana nú?? Hún verður frumsýnd 26.desember í Færeyjum (veit ég) en ekki hvenær hún verður frumsýnd hér, veit það einhver?
Flokkað undir: Kvikmyndir | 1 ummæli »
Ég held ég kunni ekki að vera í fríi, er gjörsamlega búin á því eftir þennan dag. Ætlaði að gera hundrað milljón hluti; dekra við mig og baka og þvo og allt en endaði á því að hjóla um allan bæ með poka og pinkla og taka til í geisladiskunum mínum!! Eldaði svo með Ásgeiri [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | 1 ummæli »
Það var himinsæl stúlkukind sem arkaði á háum hælum, sumarpilsi og blómabol á skrifstofu hugvísindadeildar í Nýja-Garði 2 mínútur fyrir 3 í dag. Sólin skein í heiði og í höndunum hafði hún glóðvolga BA-ritgerð, sem var nýkomin úr bindingu í Samskiptum á Hverfisgötu. Hafði hún brunað bæinn þveran og endilangan til að prenta og binda [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | 1 ummæli »
Er eðlilegt að vakna um miðja nótt í svitakófi af því að maður man allt í einu eftir því að ein tilvitnun gleymdist eða að mann vantar eina bók eða eitt ártal í ritgerðina? Ég er sem sagt komin með bullandi magasár út af þessari blessuðu ritgerð, vona að það lagist um leið og henni [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | 2 ummæli »
Þá er þessari vorgeðveiki senn að ljúka! Ég skila lokaeintaki af ritgerðinni minni í næstu viku (þri., mið.) og allt er bara að smella saman, held ég! Djöfull skal ég læsa hana niðri í skúffu þar til í haust þegar hún verður loksins tilbúin! Alveg að fara með mig…
Ég var viðstödd yndislegt brúðkaup á fimmtudaginn. [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | 1 ummæli »
… gleymdi ég að taka fram hvar ég verð á undanúrslitum Júróvisjón? Já, einmitt ég verð í brúðkaupi að heiðnum sið í Garðabænum…. skemmtilegt?
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Leave a Comment »
Legg til að allir sem vettlingi geti valdið skelli sér í röntgenmyndatöku af smágirni, það er skemmtun sem ekki gefst á hverjum degi
Ég er sem sagt á fullu í að láta athuga á mér magann – er að spá í að skilja við hann að borði og sæng, því hann er svo fjandi [...]
Flokkað undir: Heilsan | Leave a Comment »
Ég get talist heppin að því leytinu til að ég bý tiltölulega stutt frá svona ,,grænum svæðum” eins og þau kallast. Það er stutt að fara í Laugardalinn og það er ekki svo langt að fara í Elliðaárdalinn heldur. Eftir að ég hafði sofnað sjö sinnum ofan í greinina sem ég var að lesa um [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | 1 ummæli »
Er ekki bara enn einu sinni komið sumar? Sól og pínu hiti, en á Íslandi tekur enginn eftir því vegna þess að allir sitja inni og læra fyrir próf. Í lok dagsins fær maður meira að segja dálítinn hausverk af því að píra augun á móti sólinni. En guði sé lof, þá er þetta bara [...]
Flokkað undir: Vísindi og fræði | 1 ummæli »