Vá maður! Ég held ég hafi sjaldan verið jafn brunnin eftir jafnstuttan tíma í sólinni, ég sat nefnilega í sólinni á miðvikudag og sötraði hvítvín á svölunum hjá Helgu í 5 tíma. Náði ég mér í þónokkurn lit… alla vega er ég eins og Tommi tómatur núna, með þetta svakalega kerlingarbolafar á bringunni og rauða [...]

Getur sá sem er þorinn og minnugur ekki verið ,,huginn og muninn”?
- Það eru svakalega innihaldsríkar samræður hérna í Odda… (haha)

Útilega og útréttingar…

Við skelltum okkur nokkur í útilegu um helgina; ég, Ásgeir, Húbba, Nína frænka og Gunnur vinkona hennar, Unnur og Steinunn (svo hittum við Ara og Lilju). Ákváðum förina á föstudagskvöldinu. Eitthvað gekk brösuglega að hóa saman fólki (bílaskipulagið ekki alveg nógu gott, en) – Vegna ástands sumra (og annarra sem ekki var hægt að ná [...]

Sumarsumar

Sumarið hefur lent í Reykjavík. Áætlaður komutími var í byrjun maí en það mætti “fashionably late” – sem er allt í lagi… þegar maður situr inni við tölvur og vinnur imbavinnu. Ég er hins vegar svo hæstánægð með vinnuna og vinnufélagana að ég get ekki kvartað. Við erum svakalega dugleg að nördast; spjöllum hálfu dagana [...]

Undarlegur bíómyndasmekkur minn

Ég hef löngum þótt hafa undarlegan smekk fyrir bíómyndum. Skemmst er að minnast Julie Andrews-æðisins míns sem enn er í fullu fjöri sem og Vivien Leigh-æðið… ok, ég veit ég er halló! Ég fæ líka gamlar myndir á heilann – elska að horfa á gamlar svart/hvítar myndir þar sem tilfinningarnar eru því dramatískari sem augabrúnir [...]

Svona þekki ég flott fólk!! Rósa vinkona á leiðinni út með ruslið…. hahahah
(tekið af síðunni hennar Rósu – algjörlega í hennar óþökk en BARA flott mynd… þannig að ég vona að hún fyrirgefi í þetta sinn)

Afmæli á sumrin – er það stuð??

Já, það er víst til fólk sem á afmæli á sumrin þó að undirrituð þekki það nú ekki af eigin raun. Til dæmis á ástkær systir mín afmæli 4.júlí og ég vorkenndi henni alltaf svo hræðilega mikið þegar við vorum litlar af því að hún gat aldrei boðið öllum í bekknum í afmælið – því [...]

Laugardagskvöld í bænum… eða heima

Mér finnst að það ætti að setja lög þess efnis að öllum laugardagskvöldum ætti að eyða heima í stofu að maula kex, osta og vínber með góðu rauðvíni. Slíkt gæti hjálpað geðheilsu margra og híft margan manninn upp úr þunglyndi og volæði. Ég skemmti mér alla vega konunglega í gærkvöldi, varð kannski heldur hífuð heldur [...]

Lesturinn mikli

Eins og þið sem til þekkið vitið mæta vel, þá stunda ég prófarkalestur á undurvirðulegu dagblaðsnefnunni hér í borg. Get varla sagt að það sé mjög skemmtileg vinna, en tíminn líður hratt og maður fær alltaf heitasta slúðrið beint í æð – og meira af því en maður kærir sig um oft á tíðum.
Núnú, ég [...]

Dull veður

Agalega verður maður eitthvað þreyttur í svona veðri… Er í vinnunni og er ekki alveg að meika þetta, sossum allt í lagi að hafa svona veður þegar maður þarf að sitja inni yfir tölvu. En svona til lengdar er þetta ansi slappt, það haustar snemma að. Við bíðum annars spennt eftir að geta farið að [...]