Jæjajæja ég hefi klukkuð verið (af tveimur aðiljum)
1. Einn skemmtilegasti dagur sem ég hef upplifað var 8.ára afmælið mitt. Þá var bekkjarafmæli heima og allt í einu fór rafmagnið og þrumur og eldingar skóku himininn. Þetta var lengi í minnum haft.
2. Annar fóturinn minn, sá hægri, er styttri en hinn – sem nemur hálfum sentimetra.
3. [...]

hrpfff…

Var búinn að blogga heillangt blogg (þar var klukkið og allt, Rósa, ég sver það) en svo fór það bara… Hvað ætli verði um öll þessi týndu blogg, fólk er alltaf að lenda í þessu…
- Reyni kannski aftur á morgun… þegar mér er runnin reiðin, það voru myndir og allt í þessu…

Er ekki boðið…

Það er ýmislegt sem maður vildi nú síður hafa í lífinu en verður að sætta sig við:
1. Ómagi sem virðist ekkert vera að hjaðna heldur vaknaði af væru blundi og lætur mig ekki í friði, helv… andsk…
2. Óuppfærður ráder sem er samt bara 1 árs gamall en er strax orðinn úreltur, vildi sleppa við það [...]