Kvennafrí

Það var einstök tilfinning að standa neðst á Ingólfstorgi og líta til baka og svo langt sem augað eygði voru konur í kröfugöngu um bætt kjör og jafnrétti til handa öllum. Við héldum tvær vinkonurnar af stað í miklum baráttuhug og ætluðum sko að berjast til síðasta blóðdropa. Vorum hins vegar dulítið svekktar þegar 50 [...]

Langþráð innflutningspartí…

Jæja, þá er maður búinn að prófa að halda partí í nýju íbúðinni og það var barasta sallafínt. Fullt af fólki og greinilega ekki nóg af stólum, hmmm… samt fórum við Ásgeir í Rúmfó og keyptum auka stóla í gær. Á. mætti með son sinn og meðalaldurinn í selskapnum lækkaði all verulega. Hann var náttúrulega [...]

Íslenski “baslarinn”

OK, finnst fleirum en mér þetta klaufalegur þáttur! Rétt´upp hend! Það versta er samt að það er eins og gaurinn sé að ferma stelpurnar þegar hann gefur þeim rósirnar: ,,Elísabet, viltu veita mér þann heiður að þiggja þessa rós?" hljómar nefnilega alveg eins og: ,,Elísabet, viltu leitast við að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífs [...]

Ekki amalegt það!

Fékk ágætis einkunn áðan, er eiginlega bara hæstánægð með hana því með henni er nokkurn veginn hægt að lýsa lífi mínu.
-> Eyrún – prófarkalesari, stúdína, blaðamennskunemi, sundkappi, hnitstjarna, húsmóðir, ökumaður og ómagi…
Segir þetta ekki allt sem segja þarf??