109.

Svona liti Hexía De Trix út ef hún væri manneskja af holdi og blóði!

108. Leiðrétting

Finnst rétt að leiðrétta fyrri færslu. Það var víst ekki Árni Johnsen sem kom upp með orðið tónhlöðu heldur hafði verið umræða um þetta orð á Mímisvefnum. Biðst forláts.
Finnst ykkur ekki skrítið að af 12 ráðherrum í ríkisstjórn Íslands skuli aðeins 5 blogga á netinu? Það þarf að koma hinum 7 í skilning um þann [...]

107. Daglegt líf

Vegna þess að vinnan mín felst í því að sitja við tölvu allan daginn og skoða blogg, er ég fyrir vikið mun duglegri að blogga. Vona að þið takið það ekki óstinnt upp.
Ég er sem sagt að vinna Nýsköpunarverkefni á Orðabók Háskólans og felst það í því að safna bloggum af netinu til að búa [...]

106. Stuldur á lífsreynsluyfirlýsingum

Hef séð þetta á svo mörgum bloggum og stal því af einu þeirra til að prófa: Er ég lífsreynd manneskja? Niðurstaðan er svohljóðandi:
Ég hef
( ) klesst bíl vinar/vinkonu (klessti hins vegar bíl foreldranna)
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n (munaði litlu nú á dögunum þegar DV [...]

105. Sumarnótt

Þegar ég keyrði heim á sunnudagsmorguninn í blankalogni og glaðasólskini fann ég ekki til minnstu þreytu. Hafði verið í bænum og skemmti mér þokkalega. Fannst þó töluvert mikið af illa drukknu fólki sem og áflogum og látum. Það var eitthvað sem lá í loftinu. Kannski var það spenningurinn yfir kosningunum sem voru svo ekkert spennandi [...]

asgeir
23.5.2006 19:35:00 – Vinaboð
Þú ert töffari…
…þess vegna vil ég gerast vinur þinn! kv Ásgeir Kolbeins
HAHAHAHAHAHAHA
Stenst maður svona gylliboð????
Prófiði að skrá ykkur á minnsirkus.is og þið gætuð fengið tilboð sem þið getið ekki hafnað…

Svona stendur maður þá gagnvart þessum blessuðu kosningum, a.m.k. í borginni þó að ekki megi ég kjósa þar…
Þú ert 40% hlynntur V lista
Þú ert 20% hlynntur S lista
Þú ert 20% hlynntur F lista
Þú ert 10% hlynntur D lista
Þú ert 10% hlynntur B lista
Viltu reikna út hvar þú stendur? Farðu þá hingað!
Annars er ég í stórfelldri [...]

Skólahorror af verstu sort

Er búin að vera í panikki síðan á hádegi í gær. Ástæðan: helv. sjónvarpsverkefnið!! Við eigum að skila fullbúinni frétt og handriti á mánudag. En kameruna og klippitölvuna þurfum við að panta og höfum bara í einn dag hvort. Jújú, það gekk alveg vel að taka og finna myndefni, hef nú gert það nokkrum sinnum [...]