124. Við minninganna eld

Segið svo að maður kunni ekki neitt, búin að vera með þetta á heilanum heillengi. Maður lærði líka ýmislegt af þessu á sínum tíma:
Hér í skólanum er skemmtilegt að vera, það er skrambi margt sem hér er hægt að gera. Það er ýkt, það er kúl og algjört æði, það er ýkt er við röppum [...]

123. Litla æðin ljóta

Einu sinni var lítil æð. Hún hríslaðist í rólegheitum yfir vinstra handarbak. Lífið var ofsalega rólegt hjá litlu æðinni. Blóðið streymdi um hana í hæfilegum skömmtum, hún gat ekki kvartað. Æðin litla var ekki áhyggjufull og hugsaði sjaldnast um framtíðina. Hún vissi að hún var aðeins lítil æð, alls engin slagæð og fátt gat raskað [...]

122. Heimilisleg í meira lagi

Ég er mjög ánægð með hvað við skötuhjúin vorum dugleg um helgina. Við vorum að byrja að lakka gluggann í stofunni. Það er náttúrulega þvílík vinna og enn eigum við eftir að lakka aðra umferð. Ætli það taki ekki allt sumarið að klára þessa fjóra glugga sem eru á íbúðinni. Svaka mikil undirbúningsvinna og ryk [...]

121. Um blogg

Ég hef komist að ýmsu um blogg og einkenni þess á þessum vikum mínum í starfinu. Ég vildi óska að ég gæti sagt að ég hafi skoðað allar íslenskar bloggsíður sem fyrirfinnast en því fer fjarri því ég finn alltaf eitthvað nýtt. Mér sýnist sem flestir sem blogga bloggi um allt milli himins og jarðar. [...]

120. Helgin að baki

Í gær snerum við skötuhjúin aftur úr nokkuð löngu ferðalagi. Lagt var upp á föstudag og brúðkaup undirbúið sem átti að fara fram daginn eftir í Kirkjuhvammskirkju á Hvammstanga. Þó að eldi og brennisteini rigndi þá um eftirmiðdaginn hékk hann þurr á sjálfan brúðkaupsdaginn. Kirkjan var afskaplega sæt lítil timburkirkja sem rétt hafði 80 manns [...]

119. Töffheit

Töffheit eru að vera með English Breakfast-te með hunangi í einangrunar-ferðabolla úr stáli. Ú je!!

118. Hnitstjörnur á heimsmælikvarða

Loft var lævi blandið þegar þrjár konur mættu í höfuðstöðvar TBR í Laugardalnum kl. 19:38 í gærkvöld. Lykt af fúkka og gömlum svita tók á móti þeim. Ásamt fádæma dónalegum afgreiðsludreng á unglingsaldri sem hreytti í þær athugasemdum hægri vinsti. Þær létu sig þó hafa það og biðu eftir hinni fjórðu sem mætti galvösk stuttu [...]

118. Klippklipp

Ég er þvílíkur dundari. Alveg frá því að ég var lítil hefur mér tekist að hafa ofan af fyrir mér með ýmsu móti. Afleiðingin er sú að ég eyddi alltaf gífurlegum tíma inni í herbergi. Sem er kannski ástæðan fyrir því hversu skrítin ég varð. Eftir að hefðbundnum barnaleikjum sleppti (Barbie, dúkkó, póní, sylvanian) tók [...]

117.færsla

Innihaldið í veskinu mínu: (já, ég veit, ég hef of mikinn tíma í vinnunni til að dunda mér)

Krúttlegt kort frá kærastanum í tilefni 5 ára afmælisins um daginn
Gleraugnaafþurrkunarklútur með mynd af Íslandi
Kvittanir
ISIC-kort
Bókasafnskort í Kópavogi og Reykjavík
Fjölnota lyfseðill
Útrunnið afsláttarkort frá Tryggingastofnun
Gleraugnarecept – sem ég held að sé úrelt
Inneignarnótur í Húsgagnahöllinni og 66°N
Debetkort og visakort
Ökuskírteini
Sundkort í Kópavogslaug
Nokkur [...]

116. færsla

Er ekki kominn tími til að færa sig um set?
Maður á náttúrulega ekki að láta bloggerinn fara svona með sig…
Hvernig líst þér á??