144. Plehh…

Æ, á maður að láta þessa vitleysu stjórna sér? Vakna um miðja nótt??
Ætlar Skjár einn að borga atvinnurekendum skaðabætur fyrir sofandi starfsmenn í fyrramálið??
Ef ég vakna, þá kýs ég. En ég er ekki bjartsýn á það…
Annars – áfram Magni!!

144. Váá!

Þetta verð ég að eignast!

143. Fjórði hittingur kvikmyndaklúbbsins Bíódaga

Bíódagar hittust í Hlégerðinu á sunnudaginn fyrir viku (já,já, ég veit að þetta hefði átt að koma fyrr) og horfðu á kvikmyndina Næsland (e. Niceland) eftir Friðrik Þór Friðriksson. Eins og segir á bakhlið myndarhulstursins er þetta lokaþátturinn í þríleik FÞF sem hófst með Börnum náttúrunnar og hélt áfram með Englum alheimsins. Eftir miklar bollaleggingar [...]

142. Frumkvöðull

Ég hef löngum vitað að ég sé á undan minni samtíð en sjaldan fengið staðfestingu á því. Fyrr en í dag. Í þessari grein segir frá því að tedrykkja sé hollari en vatnsgutl. Það hef ég vitað lengi og í háa herrans tíð hefur fæðuhringur minn samanstaðið af tei – og svo smá af öllu hinu. [...]

141. Þjóðargersemin Gilitrutt (1957)

 
U.þ.b. helmingur kvikmyndaklúbbsins Bíódaga (tveir meðlimir) hittust á menningarnótt í Þjóðminjasafninu og horfðu á kvikmyndina Gilitrutt. Hún var framleidd af Ásgeiri Long, vélfræðingi sem hóf kvikmynda-, heimildamynda- og auglýsingagerð á 6. áratugnum. Myndin var leikstýrð af Jónasi Jónassyni, sögumaður var Róbert Arnfinnsson (þá ungur og upprennandi leikari, aðeins rúmlega þrítugur) og helstu leikendur voru Valgarð [...]

140. “Eitthvað fyrir sunnan sem rímar við þrenning…”

Menningarnóttin var stórkostleg. Ég lét gamlan draum rætast og mætti á viðburði UM DAGINN LÍKA. Skammarlegt að hafa alltaf ætlað að sjá hitt og þetta en ekki nennt því þegar á hólminn kom. Þess vegna tók ég mig til og útbjó dagskrána Menningarmaraþon 2006 fyrir mig og systur mína. Svo bættist mamma við. Dagskráin var [...]

139. Kórhittingur

Síðasta sunnudag hittist gamli Skólakór Garðabæjar í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Hafði þessi hittingur verið planaður nú í sumar af tveimur af eldri kórgellunum, mér og Gunnu. Við höfðum lagt ýmislegt á okkur við undirbúninginn; haft samband við flesta gamla kórfélaga með öllum leiðum , fengið ýmsar veitingar gefins (gos, bakkelsi og kaffi), útbúið myndasýningu á [...]

138. Land vonar og drauma

 
Ég hef nýlokið við að lesa sjálfsævisögu Bandaríkjamannsins Richards Wrights, sem ber heitið Black Boy. Eins og nafnið bendir til fjallar sagan um uppvöxt hans í Suðurríkjunum og leiðina til manns í samfélagi þar sem svertingjar eru varla taldir til mennskra. Sagan er að mestu leyti týpísk sjálfsævisaga manns úr minnihlutahóps þar sem hann fjallar [...]

137. Í pásum í vinnunni…

… er gott að skoða innihaldslitlar og skemmtilegar vefsíður, t.d.
Retrojunk.com – Þar er sannarlega hægt að týnast tímunum saman. Manstu eftir Bangsa bestaskinn, Kærleiksbjörnunum, He-Man, Lafði Lokkaprúð, Gúmmíböngsunum, Davíð dverg, Leiðinni til Avonlea, Barða hamar og öllu hinu sem maður horfði á sem krakki? Á þessari síðu geturðu skoðað kynningarstef þessara þátta og misst þig [...]

136. Þriðji hittingur kvikmyndaklúbbsins Bíódaga

Kvikmyndaklúbburinn Bíódagar hittist í þriðja sinn í gær í Grafarvogi. Áætluð hafði verið sýning myndarinnar Veiðiferðin eftir Andrés Indriðason frá árinu 1980 en þar sem hún virtist ófáanleg (grunur leikur á um að hún sé sjónvarpsmynd og því enn erfiðara að nálgast hana) var myndin Magnús eftir Þráin Bertelsson frá árinu 1989 fyrir valinu. Fjallar hún í stuttu [...]