Búin að fara tvisvar á bókamarkaðinn. Keypti fullt af bókum. Þrátt fyrir góðan ásetning endaði ég auðvitað á því að kaupa fullt af skáldsögum, ég gat bara ekki hamið mig!
Ég er annars þrælánægð með þau kaup sem ég gerði; keypti bókina Útvarp Reykjavík (sögu útvarpsins á Íslandi), Biblíu fallega fólksins eftir Gillzenegger sem mér finnst að allir áhugamenn um íslenska tungu ættu að eignast (hún kostaði innan við 1000 kall) og Á hverfanda hveli á íslensku sem er bara æðisleg! Hún kostaði 590 kr, sem er ekki neitt fyrir þetta stórvirki…
Ég lendi líka alltaf í því að kaupa eina eða tvær bækur bara út af kápunni. Bókakápur sem eru vel unnar og stílíseraðar heilla mig óstjórnlega. Það sakar ekki ef bækurnar eru gamlar. Bókin sem heillaði mig upp úr skónum lét ekki mikið yfir sér, fjólublá kápa með silúettum af konu, manni og stúlku. Hún er eftir Hönnu Kristjónsdóttur (sem skrifaði Ást á rauðu ljósi). Það var titillinn sem fékk mig til að setja hana í körfuna: Miðarnir voru þrír! Hver vill ekki komast að því hvaða miðar þetta séu eða hvernig örlög persónanna hverfast um þá??? Ég bara spyr.

Flokkað undir: Bækur
hljómar mjög spennandi ,,miðarnir voru þrír” Sérstaklega orðið ,,voru”