
Undanfarin ár hef ég verið ákafur talsmaður hvers kyns temenningar. Ég hætti að drekka kaffi og upphóf mikla tedrykkju sem stendur enn og sér varla fyrir endann á. Þegar ég var sem verst drakk ég te í öll mál og borðaði helst ekkert, kannski kex. Tekex.
Því má segja að teið hafi bjargað mér þegar ég var með ómaga því að það var eitt af því fáa sem ekki fór illa í hann.

Sem barn var ég sí og æ með blöðrubólgu og var ég látin drekka te við henni og hvarf tilfinningin eins og dögg fyrir sólu. Hef ekki fengið blöðrubólgu síðan. Þessu tvöfalda bjargræði mun ég seint gleyma. Því hef ég einsett mér að verða Tedrykkjukona með stóru T-i alla mína tíð.
Ósköpin byrjuðu fremur látlaust, ég skipti úr pokatei í laufte og keypti mér eina og eina tegund. Áður en ég vissi af var ég búin að hlaða í kringum mig alls kyns baukum og kirnum sem ég fyllti af ýmsum tegundum af tei. Ef ég keypti mér nýja tegund af tei en átti ekki bauk undir það keypti ég hann bara líka. Safnið er nú orðið ansi stórt.
Svona munaði fylgir ýmis búnaður sem sannur teaðdáandi má ekki láta fram hjá sér fara. Byrjendapakkinn samanstendur af meðalstórum katli, síu og tebolla í stórri stærð. Þegar maður fer að færa sig upp á skaftið bætast fleiri katlar og bollar við og skúffurnar fyllast af ýmis konar síum. Hunanginu má heldur ekki gleyma.
Ég vissi sem var að teið hafði haft sín góðu áhrif á mig en þegar ég fór að kynna mér hlutina betur komst ég að raun um að te hefur sjaldnast slæm áhrif. Eiginlega bara góð:
- Drykkja á svörtu tei getur komið í veg fyrir gasmyndun í meltingarvegi
- Svart te minnkar líkur á ákveðnum tegundum af krabbameini í maga
- Hjartasjúklingar, sem drekka tvo bolla af tei á dag, minnka líkur á alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins um 44%.
- Svart te má nota útvortis til að flýta fyrir því að græða sár því að telaufið ýtir undir samdrátt húðarinnar.
- Snefilefni í svörtu tei eru góð til varnar inflúensu-vírus og hafa meiri andoxunarefni en E-vítamín.
- Svart te hefur eiginleika til varnar skaðlegum áhrifum geislunar úr umhverfinu.
- Grænt te er án efa eitt öflugasta andoxunarefni sem til er. Það er ekki gerjað og er því auðugt af ýmis konar vítamínum og steinefnum; t.d. A, B1, kalki, járni, kalíum, sódíum, potassíum og sínki.
- Grænt te lækkar kólesteról og blóðþrýsting og hefur einnig uppbyggjandi áhrif á ónæmiskerfið.
- Japansk grænt te er gott fyrir húðina, ver gegn tannskemmdurm, er talið gott gegn æðaþrengslum, bakteríusýkingum, nýrnasteinum og offitu.
- Grænt te er talið svo C-vítamínríkt að tveir bollar af grænu tei gefa jafnmikið C-vítamín og stórt glas af hreinum appelsínusafa.
- Rauðrunnate er talið gott við ýmis konar vöðvaverkjum og við exemi. Einnig er mælt með því við þá sem þjást af svefnleysi og hafa viðkvæman maga eða taugar.
Nú í sumar fór ég til Þýskalands og var alveg veik þegar ég rakst á litla búð sem seldi eingöngu te og tevörur. Mig hreinlega langaði til að kaupa allt sem fékkst þar. Hamdi mig og keypti nokkrar tetegundir sem ég vissi að voru ekki til heima.
Ástæðan fyrir þessari bloggfærslu er sú að núna upp á síðkastið hef ég EKKI drukkið sérstaklega mikið af tei. Drekk alltaf bolla á morgnana áður en ég fer í vinnuna og annan þegar ég kem heim. En ekkert meira. Sem er ekki svipur hjá sjón því að þegar ég vann að ritgerðinni í vor drakk ég sem nam tveimur stórum tekötlum yfir daginn, sennilega um tylft bolla.
Ég hef líka fundið fyrir sleni og mikilli þreytu. Er viss um að þar er teleysinu um að kenna.
Verð að fara að hressa mig við og fá mér tebolla, þessi færsla er orðin alltof löng…
![]()

![]()
Flokkað undir: Heilsan, Matur og drykkur
Ég veit alveg af hverju þú hefur drukkið svona lítið te undanfarið. Það er af því það er búið að vera svo heitt. Þessa dagana drekk ég te á morgnana og síðan eiginlega ekkert meira allan daginn, nema kannski einn bolla á kvöldin.
En mikið hrósa ég þér fyrir þessa fögru færslu um unaðsemdir tedrykkju og alls þess sem henni fylgir.
Ég drakk mikið te hérna á árum áður. Ég hef þó mikið lagt te á hilluna þar sem teið sem ég var von að drekka olli auknu bakflæði. Ég hef þó fulla trú á því að til sé te sem fer betur í magann á mér. Einhverja hluta vegna hef ég alltaf haldið að Jasmine te myndi gera gæfu munin. Ég hef þó rekist á eitt te sem heitir englis blend sem er einmitt að hluta Jasmine te og það hefur róað magan auk eins te sem var keypt í búð í Kaupmannahöfn sem nú er búið að loka. Ég þarf því greinilega að fara í te verslunog skoða og prófa því satt best að segja sakna ég tesins, sér staklega á morgnanna.
Besta te i heimi er tiramisu teid hja sufistanum. Thad er bara gott
kv fra USA
Gott að heyra hvað margir hafa skoðanir á tei! Helga: Ég er viss um að þetta er rétt hjá þér. Líkaminn þolir einfaldlega ekki svona mikinn hita og þess vegna drekk ég frekar eitthvað kalt en te. Hilla: Jasmínte er voða gott magate svo og piparmyntu og eiginlega allt grænt te, verð ég að segja. Núna er maginn minn samt alltaf góður út af lyfjunum og þess vegna get ég drukkið hvaða te sem mig lystir