
Ég lofaði sjálfri mér því þegar ég greindist með Crohn´s að ég skyldi nú ekki fara að láta allt snúast um hann, og hvað þá að fara að blogga um hann!
Ég sé það núna að ég hef bloggað nokkrar færslur og biðst afsökunar ef einhverjum hefur sárnað það
Ég er hins vegar orðin brjáluð í Facebook og komst að því að þar eru nokkrir Crohns-hópar og meira að segja hópur sem spjallar um lyfið sem ég er á, Remicade. Það er náttúrulega bara snilld!
Það er nefnilega ósköp takmarkað sem ég hef fengið upp úr lækninum varðandi ýmislegt í tengslum við lyfið, t.d. meðgöngu og mataræði – og nú get ég fengið upplýsingar beint í æð frá fullt af fólki sem hefur mikla reynslu af þessum málefnum og er í sömu sporum og ég, einfaldlega með því að setja þar inn póst! Þarna eru meira að segja einhverjar konur sem hafa lagt út í meðgöngu á Remicade!! Spennandi…
P.s. Mér finnst að allir ættu að fá sér Facebook
Flokkað undir: Heilsan
Þessi færsla innihélt orðið “meðganga” 2svar – á maður von á svoleiðis von bráðar Hulda?
Nákvæmlega það sem ég hugsaði!
Læknavísindunum fleygir fram – þannig að það er aldrei að vita!
Já hvað er Crohn´s?