206. Nýr og betri kroppur

Er að spá í að prófa að fara í Trimform – og nýta til þess stéttarfélagsstyrkinn minn! ;)
Held það væri ekki vitlaust til að hressa aðeins upp á línurnar. Ég er náttúrulega líka úber-heilsusamleg með því að fara í sund á hverjum degi en þarf samt að skera af mér mörinn…

Svo er bara spurning hvernig gengur í sykurbindindi – ég hef hingað til alltaf þjáðst af ólæknandi sykurþörf nánast á hverjum degi! Einhverjar hugmyndir um hvernig maður sigrast á þörfinni?

8 svör

  1. Mæli nú ekki með trimmform. Til þess að það virki þarftu að huga að mataræðinu, drekka nóg vatn og hreyfa þig (og miðað við það sem ég hef lært ku það vera nóg til að skera mörin). Notaðu frekar stéttarfélagsstyrkin í eitthvað skynsamlegra og skemmtilegra :)
    Niðurskornir ávextir og grænmeti draga úr sykurþörfinni, allavega hjá mér.

  2. Ég hef prófað Trimmform. Það var agalegt. Ég þurfti að berhátta mig og síðan kom konukind sem skellti plastblöðkum í ískalt vatn og smellti síðan víðsvegar um kropp minn á meðan hún fussa “hnuss, þetta gengur ekki, iss, iss”. Hljómaði ekki mjög uppörvandi. Síðan setti hún mig á bekk og tengdi allar blöðkurnar við tæki sem leit út eins og gamalt útvarpstæki. Þá var kveikt á græjunni og ég kipptist við trekk í trekk. Það var í sjálfu sér ekkert vont, en heldur ekkert óskaplega þægilegt. Þangað til ég rakst í takkann og setti allt á fullt. Hélt ég myndi deyja.

    Það er ekkert sem vinnur bug á sykurþörf. Er búin að vera í sykur-, súkkulaði- og gosbindindi í nokkra daga og er að flippa. Held þetta sé svona “vont en það venst”-dæmi.

  3. Takk fyrir þetta báðar tvær.
    Ég hafði nú hugsað mér að halda áfram að hreyfa mig og borða skynsamlega, Fanný, trimformið á bara að hjálpa til á þessum “erfiðu” svæðum (lærum og mjöðmum t.d.) þar sem ummálið hefur ekkert minnkað þrátt fyrir hreyfingu. Nú, ef þetta er hræðilegt eftir fyrsta tímann þá bara fer ég ekki aftur! ;)
    Ég er sammála Helgu, hef reynt vatn og ávexti og grænmeti við sykurþörf og það virkar ekki fyrir mig…

  4. Ég dáist að þér fyrir að fara í sund á hverjum degi.
    Ég er hins vegar undarlega sorgmædd yfir því að þú skulir ekki vera orðin 25 kíló af öllu þessu sundi. Ég, sem hef aldrei hreyft mig að ráði, hef alltaf haldið að ef ég myndi bara drattast til að hreyfa mig aðeins (svona eins og að fara í sund á hverjum degi) þá myndi mörinn renna af mér eins og bráðið smér á augabragði!
    Þvílík sorg.

  5. Mörinn bráðnar, trúðu mér Hlíf, en það er dálítið erfitt að geta ekki séð hann hverfa… :) Maður þarf að bíða svo lengi eftir að sjá árangur…

  6. nei nei nei trimform !

  7. ég mæli með að borða kjöt þá fæ ég minni sykurþörf en ef ég borða mikið pasta og solleiðis langar mig alltaf ógó mikið í súkkulaði. Varðandi mörina þá mæli ég með að eignast barn brjóstagjöf er eitrað grenningarmeðal 8 kg léttari en fyrir barnsburð.
    Já og er búin að lesa mér til um meltingafærasjúkdóminn Crohn´s hann á ekkert að standa í vegi fyrir barneignum…

  8. Já, Sigrún – ég hef tekið eftir því að ef maður borðar mikið prótein minnkar sykurþörfin…
    Það er í rauninni ekki sjúkdómurinn sem er að ergja mig, heldur lyfið sem ég er á til að halda honum niðri – það er algjört eitur!

Skildu eftir svar