Þann 23. febrúar fer ég á tónleika að sjá þessa fíra á sviði sem kenna sig við þursa
Þeir gáfu m.a. út þessar plötur
… eru víst að koma saman í tilefni af 30 ára afmæli sínu og verður svaka stuð, spila með Caput-hópnum og ég veit ekki hvað!
En…
á sama tíma verður þetta í sjónvarpinu
þ.e.a.s. lokakeppnin – þar sem framlag okkar í þessa keppni
verður valið!
Ég er eitt mesta júróvisjón-nörd (já, það er hk.orð!) sem ég þekki.
Hvað var ég að hugsa?
Flokkað undir: Eurovision, Sjónvarp, Tónlist | Tagged: þættir, OMG, Tónleikar
Eyrún, Eyrún mér sýnist þú vera komin í klemmu
Sko ég skil bara ekkert hvað þú varst að hugsa! Hvernig á ég að halda Eurovision partý án þín? Ég verð í öllu falli að finna einhvern jafn mikin júróvísjon nörd og okkur til að standa með mér í þessu!
Æ,æ,æ!
Hugsaðu bara að þessir tónleikar verða ekki endursýndir daginn eftir og ekki hægt að taka þá upp. A.m.k. ekki upplifun þín á þeim. Væri alveg til í að fara á þessa tónleika og horfa á undankeppnina en verð því miður upptekin. Þú heldur bara míní júróvisíon partý daginn eftir. Og svona meðan ég man þá þekki ég meira júróvisíon-nörd en þig.
Erla.
Vei, takk fyrir uppbyggilegheitin Erla!
Færslan var nú meira sett fram í kaldhæðni því að ég hlakka virkilega til að sjá Þursaflokkinn!! Það er nú samt gott að vita að manns verður saknað í júró-partíinu! Ég kem bara beint eftir tónleikana Hilla
Ég er líka júróvisjón nörd… og ég ætla í leikhús þann 23. Það segir ýmislegt um það hvað þetta eru leiðinlegir þættir….