244. Vor í lofti – bók í hönd!

Þegar fer að vora svona eins og undanfarið, langar mig ekkert meira en að lesa góðar bækur. Það er eitthvað við sumarið sem fær mig til að dreyma um að flatmaga í sólinni og lesa eitthvað stórvirki.

Af því tilefni uppfærði ég listann minn undir flipanum Bestu bækur allra tíma. Þar er nú kominn enn lengri og ítarlegri listi í stafrófsröð.
Ef þið eruð eins og ég, hvet ég ykkur að drífa ykkur á bókasafnið og fylla svo náttborðið af meistaraverkum, hvort sem þau eru erlend eða íslensk!!

Var að klára þrjár bækur; Pan, Loftskeytamanninn og Viktoríu eftir Knut Hamsun. Mæli með þeim öllum fyrir rómantíkera!

Ein ummæli

  1. Ég er búin að fara mjög vandlega yfir listann og hef komist að því að ég hef lesið allt of fáar bækur. Og það sem verra er að í þessum uppfærða lista eru fullt af titlum sem ég kannast bara ekkert við.

    En Don Quixote, Les miserables og Ástkær koma tvisvar fyrir á listanum:)

    Jæja, held ég verði bara að fara að lesa. Næst á dagskrá hjá mér er Óliver.

Skildu eftir svar