Posted on október 31, 2008 by eyrun
Jæja, þá er mér nóg boðið!
Eins og gefur að skilja hef ég verið að skoða hitt og þetta varðandi ferðalagið til Ástralíu. Þar sem nú eru tæpir tveir mánuðir til brottfarar (!) hef ég verið að skoða hótelkostnað á ýmsum stöðum og fleira. Á einni síðunni gat ég breytt úr ástralska dollaranum yfir í íslenskar [...]
Flokkað undir: Stjórnmál og samfélag, Vefurinn | Tagged: ástralía, Ferðalög, verðlag | 2 ummæli »
Posted on október 30, 2008 by eyrun
Mikið vildi ég að allir fimmtudagar væru eins og þessi! Jah, eða að minnsta kosti enduðu eins og hann. Morguninn var nú kannski ekkert spes þar sem það kviknaði í loftljósi í vinnunni. Upp gaus þessi svakalegi reykur og slökkviliðið kom og allt! Sem betur fer var engin hætta á ferðum og eini skaðinn var [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Lífsstíll | Tagged: Matur, nudd, vinna | 2 ummæli »
Posted on október 29, 2008 by eyrun
Lífið gengur svo sem sinn vanagang: vinna, borða, sofa. Engin lygi þar á ferð nema þegar ég drattast í sund. Sem er alltaf svo gott að ég skil ekki að ég skuli ekki gera þetta tvisvar á dag. Eins og ég hef sagt; þyldi húðin á mér og hárið það, myndi ég sennilega búa í [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Vinir og fjölskylda | Tagged: jóló, vinna | 7 ummæli »
Posted on október 28, 2008 by eyrun
Ég er voðamikið fyrir nokkurs konar “stemnings”-myndatöku. Finnst svona “moment before the crash”-myndir ákaflega skemmtilegar og þegar myndir eru settar í samhengi við atburði líðandi stundar.
Þessa mynd af veggjakroti tók ég í listaborginni Weimar í Þýskalandi síðastliðið sumar. Þarna var listamaðurinn í reiðari kantinum, býst ég við, og ósáttur við uppgang nýfrjálshyggjunnar. Ef til vill [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Ljósmyndun | Tagged: Ferðalög, stemningsmyndir | 3 ummæli »
Posted on október 27, 2008 by eyrun
Á leiðinni heim úr sundi áðan týndi ég öðrum eyrnalokkinum mínum. Hann hefur hoppað upp úr vasanum þegar ég tók hanskana upp því ég setti þá báða í vasann þegar ég fór ofan í.
Ég sneri því við og grandskoðaði allan klefann, leiðina út í bíl og lét afgreiðslukonuna í sundlauginni vita. Finnst þetta frekar sárt [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: týnt og tröllum gefið | 5 ummæli »
Posted on október 26, 2008 by eyrun
Notalegir svona sunnudagar þar sem maður gerir helst ekki neitt. Vakna seint og hengslast heima fyrir.
Tókum til í geymslunni í gær og ég skellti mér í útskriftarveislu.
Í dag var svo vöfflukaffi í Grafarvogi og matur í Garðabænum. Hittum alla strolluna í Grafarvoginum, líka þessa litlu mús sem undi sér sátt í forstofunni að leika sér [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Vinir og fjölskylda | Tagged: familían | 2 ummæli »
Posted on október 23, 2008 by eyrun
Í dag var ég á starfsdegi í vinnunni í húsi í Elliðaárdalnum. Ofsalega finnst mér þetta fallegur staður, alveg eins og vin í eyðimörkinni. Ef veðurspáin hefði gengið eftir og veðrið orðið stjörnuvitlaust hefði ég ekkert haft á móti því að vera innlyksa í fallegu húsi með þetta fallega útsýni.
Rifjaði upp göngutúr sem ég skrapp [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Ljósmyndun | Tagged: Útivera, Lovely, náttúran | 4 ummæli »
Posted on október 22, 2008 by eyrun
Í dag finnst mér ég vera dálítil hetja. Ég hef verið að vinna í lofthræðslunni minni undanfarið og hef náð býsna langt. Ég er afskaplega hrædd í djúpi vatni, veit ekki hvort hægt er að kalla það lofthræðslu (ég veit alveg að ég dett ekki í vatninu) en samt, finnst það mjög óþægilegt.
Ég fór sem [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: Lofthræðsla | 5 ummæli »
Posted on október 21, 2008 by eyrun
Voðalega eitthvað dösuð þessa dagana, búin að vera að drepast í mjóbakinu. ÁPB segir ástæðuna vera að ég sitji of mikið – það er nú eitthvað til í því. Ég sit t.d. og sauma núna, alveg eins og rækja í laginu og ekki getur það verið gott fyrir bakið.
Hann var ofsa góður og gaf mér [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Ljósmyndun, Matur og drykkur | Tagged: blóm, eldamennska, sauma | 3 ummæli »
Posted on október 20, 2008 by eyrun
(vó, 300 færslur!)
Í dag fór ég eftir vinnu niður í Árnagarð og ég finn hvað ég sakna þess að vera þar. Finn alveg hvað andinn lyftist og ég hef alvarlega verið að pæla í því hvort ég ætti ekki að skella mér í almenn málvísindi, svo sem eins og einn eða tvo kúrsa með vinnunni… [...]
Flokkað undir: Bækur, Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: íslenskan, Mímir | 10 ummæli »