Posted on nóvember 28, 2008 by eyrun
Ég trúi því varla að það sé minna en mánuður þar til ég verð hér:
Verð að láta fylgja með dásamlegt myndband… væri maður til í alla þessa staði?!
Kveikir þetta ekki ferðaþrána hjá ykkur öllum??
Flokkað undir: Ferðalög | Tagged: ástralía | 10 ummæli »
Posted on nóvember 26, 2008 by eyrun
Þeir stóðu í ströngu við að skreyta jólatréð á túninu fyrir neðan blokkina þegar ég kom heim áðan, blessaðir bæjarstarfsmennirnir. Þetta er ómissandi hluti af jólaundirbúningnum, finnst mér, að skreyta stóra jólatréð.
Enda sést það úr nær öllum gluggum íbúðarinnar (ég er meira að segja að horfa á það núna).
Kannski eins gott að það sé skreytt, [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: jóló | 5 ummæli »
Posted on nóvember 25, 2008 by eyrun
Þetta finnst mér sniðugt. Ég skellti bara upp úr, svei mér þá:
Meira á þessari síðu.
Flokkað undir: Vefurinn | Tagged: surf-dót | 2 ummæli »
Posted on nóvember 24, 2008 by eyrun
Þessa dagana snýst allt hjá mér um smákökur og skjalasöfn. Góð blanda!
Hef staðið í ströngu við að baka fyrir jólin og baksturinn hefur komið mér í ágætis jólaskap. Ég hef þó ekki freistast til að hlusta á jólalög því það er alveg bannað – 1. í aðventu er alveg fyrsti dagurinn og heilagur. Heyrði eina [...]
Flokkað undir: Matur og drykkur | Tagged: bakstur, jóló | 3 ummæli »
Posted on nóvember 23, 2008 by eyrun
Eftir kvartpóstinn mikla um ástand bíómála hér á landi fannst mér nú ekki annað hægt en að skella mér á eina “menningarlega” bíósýningu.
Í gær, laugardag, sýndi Bæjarbíó í Hafnarfirði sænsku myndina Fjalla-Eyvindur og eiginkona hans og ég dró ÁPB með mér. Hef aldrei komið þarna inn en anddyrið er svo fallegt að maður tók bara [...]
Flokkað undir: Kvikmyndir | Tagged: bæjarbíó | 1 ummæli »
Posted on nóvember 22, 2008 by eyrun
Veiðimaðurinn á heimilinu dró björg í bú í gær.
Þær hanga nú úti á svölum og mér dettur ekki í hug að snerta þetta. Þetta er loðið á fótunum! *hneyksl*
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: veiði | 2 ummæli »
Posted on nóvember 20, 2008 by eyrun
Fór að hugsa eftir MSN-spjall við Rósu í Finnlandi: Kvikmyndahúsamenningin á Íslandi er steindauð!! Segi og skrifa STEINDAUÐ og GELD!
Í Reykjavík og nágrenni eru 6 kvikmyndahús. Ætla ekki að tala um landsbyggðina því að þar er ástandið mun verra. Reykjavík á nú að heita höfuðborgin. Hvað með það, ég skoðaði dagskrána í dag, fimmtudaginn 20. [...]
Flokkað undir: Kvikmyndir | Tagged: OMG | 11 ummæli »
Posted on nóvember 19, 2008 by eyrun
Nú er ár síðan við María fórum á námskeið í Bochnia í Póllandi. Ég sakna vissulega Póllands og þess að vera þar. Ferðalögin okkar þangað undanfarin ár (orðin tja… fjögur hjá mér) eru það næsta sem ég kemst g(r)óðærinu margumtalaða. Svo ekki sé minnst á að ég fór í tvær Póllandsferðir haustið 2007, eina í [...]
Flokkað undir: Ferðalög | Tagged: kreppa, Pólland | 3 ummæli »
Posted on nóvember 18, 2008 by eyrun
Bálkur hrakfalla það sem af er nóvembermánuði:
8. nóvember: Flýg á hausinn í Surtshelli. Uppsker marbletti á ólíklegustu stöðum og skrapa skinn af hægri hendinni.
15. nóvember: Loka bílhurð á olnbogann á mér (sjá mynd hér að ofan). Uppsker ótrúlegan marblett.
17. nóvember: Reyni að rista sjálfa mig á hol í sturtunni í Laugardalslauginni. Vopnið eru tvær ömmuspennur [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: klaufaskapur | 4 ummæli »
Posted on nóvember 16, 2008 by eyrun
Ég fór í gær með mömmu og pabba á mótmælin á Austurvelli. Svo gerðu u.þ.b. 6 þúsund aðrir Reykvíkingar og nærsveitarmenn. Við stóðum reyndar svo framarlega og nálægt sviðinu að við sáum ekki hversu pakkaður Austurvöllurinn var. Stemningin var góð og fólk var flest í besta skapi. Hressilegar ræður komu blóðinu á hreyfingu í lýðnum [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert, Stjórnmál og samfélag | Tagged: kreppa, mótmæli | 1 ummæli »