Posted on febrúar 18, 2009 by eyrun
Nú sé ég að ferðalagið til Ástralíu hefur leyst úr læðingi hjá mér ferðalagaþrá á hæsta stigi. Öll kvöld ligg ég í tölvunni og læt mig dreyma um ferðalög til framandi landa. Ég gekk meira að segja svo langt í hádeginu einu sinni að lista upp þær draumaferðir sem mig langar MEST í… jújú, listakonan [...]
Flokkað undir: Ferðalög | 10 ummæli »
Posted on febrúar 16, 2009 by eyrun
Auðvitað horfði ég á Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn. Sat í stéttarfélagsíbúð á Akureyri með góðum vinum og tapaði mér í gleðinni!
Við þá sem eru ekki tengdir í raunveruleikanum, voru brottnumdir af geimverum eða sofnuðu akkúrat þegar úrslitin voru kynnt segi ég:
Jóhanna Guðrún vann með yfir 9 þús fleiri stig en næsta lag á eftir. [...]
Flokkað undir: Eurovision | Tagged: Söngvakeppnin | 6 ummæli »
Posted on febrúar 9, 2009 by eyrun
Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin næstkomandi laugardagskvöld 14. febrúar. Er þetta lokaútsláttarkeppnin og framlagið sem kosið verður fer fyrir Ísland til Moskvu í maí. Samkvæmt lauslegum útreikningum mínum er þetta í 16. skipti af 21 sem forkeppni er haldin og nú er hún haldin fjórða árið í röð.
Ég verð að segja að mér finnst mun meira [...]
Flokkað undir: Eurovision | Tagged: Söngvakeppnin | 13 ummæli »
Posted on febrúar 6, 2009 by eyrun
Ég er hin mesta afmælisstelpa. Í næstu viku á ég afmæli og ég er auðvitað farin að hlakka til. Ég býst þó ekki við að halda upp á afmælið fyrr en í lok mánaðarins eða í þeim næsta.
Þrátt fyrir að hafa keypt helling í Ástralíu er eitt og annað sem mig langar í í afmælisgjöf:
1. [...]
Flokkað undir: Dægurþras um allt og ekkert | Tagged: afmæli | Leave a Comment »
Posted on febrúar 3, 2009 by eyrun
Jæja, ég lofaði síðasta ferðablogginu og hér kemur það!
Við dvöldum sum sé í góðu yfirlæti hjá Elsu og börnunum hennar og fórum t.d. með þeim inn í Brisbane-borg (hún bjó í úthverfi). Þar á Suðurbakkanum (Southbank) var manngerð sundlaug með hvítum sandi, ofsalega vinsæl hjá barnafólki. Við nutum þess að busla í vatninu sem var [...]
Flokkað undir: Ferðalög | Tagged: ástralía | 10 ummæli »
Posted on febrúar 2, 2009 by eyrun
Þá er ferðalaginu í kringum hnöttinn lokið (jah, ég fór hálfan hnöttinn til Ástralíu og aftur til baka, telst það ekki heil ferð?)
Ég er komin heim, í Garðabæinn og er að jafna mig á sjokkinu sem ég fékk við að koma aftur í kuldann, stjórnarkreppuna og íslensku geðveikina.
Lofa að setja inn síðustu dreggjar ferðasögunnar sem [...]
Flokkað undir: Ferðalög | 2 ummæli »