Á þessum bæ einkenndist júní af göngum á hina og þessa hóla og hæðir.
Hápunktarnir hingað til hafa þó verið Leggjabrjótur og Tindfjallahringurinn í Þórsmörk.
Sunnudaginn 28. júní gekk ég Leggjabrjót við þriðja mann. Leiðin liggur frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð og við gengum þá leið. Fréttum svo að Ferðafélagið gengi yfirleitt frá Hvalfirði og yfir til Þingvalla. Sem er ótrúlegt því að það er svo miklu skemmtilegra að koma niður í gróðurinn og fegurðina í Hvalfirðinum eftir vindblásnu melana á leiðinni. Svo ég tali nú ekki um hvað Hvalfjarðaruppgangan er brött ![]()
Leiðin er um 15 km. Við vorum 6 tíma á leiðinni, nutum útsýnisins og stoppuðum nokkrum sinnum.

4.-5. júlí fórum við skötuhjúin í Þórsmörk og gengum Tindfjallahringinn á laugardeginum. Við gengum í brakandi blíðu upp Stóraenda og Stangarháls og höfðum þá útsýni yfir allt Goðalandið. Gengum svo upp á Búðahamar þar sem ó-lofthrædda ég naut mín
Fórum síðan hringinn í kringum Tindfjöllin, borðuðum nesti í Tröllakirkju og komum niður í Slyppugilið. Reyndar held ég að þetta sé öfugur Tindfjallahringur þar sem oftast er farið upp Slyppugilið og niður í Stóraenda. Við vorum 4 tíma á leiðinni og sólbrunnum hressilega aftan á hálsinum!


Flokkað undir: Ferðalög | Tagged: Fjallgöngur
Rosalega eruði öfug…
Eruð samt að klikka á hefðinni með fimmvörðuhálsinn :þ
Nokkuð ljóst að þið hafið farið öfugan Tindfjallahringin ef þið brunnuð aftan á hálsinum:) þið áttuð að brenna í andlitinu….fá alvöru tan svona fyrst að ástralíubrúnkan er eitthvað farni að dofna