Sarpur | 20:32

Aldraðar vinir – góðir vinir

3 Mar

Ég get talist afar heppin kona. Ég á afskaplega góða vini sem eru mér afar kærir og sem meira er að ég hef átt þá í fleiri ár. Hvernig mér hefur haldist á þeim er ómögulegt að segja en ég þakka þeim og þolgæðum þeirra fyrir. Af ekki eldri konu en mér þá get ég státað af því að eiga vini til 15 og 18 ára – og geri aðrir betur!
Auðvitað er árafjöldinn enginn mælikvarði á gæði vináttunnar og það vita allir sannir vinir. En er þetta samt ekki doldið merkilegt? Hvað segið þið?
-Góðir vinir – gulli betri 😉