277. Dagligdags – 11. hluti

22 Sep

(þessi færsla átti að birtast í gær)

Fór með Húbbu á Batman á laugardagskvöldið.
Vááá hvað það er gjööðveik mynd! Féll gjörsamlega í stafi yfir útlitinu, leiknum og bara öllu í sambandi við hana. Heath Ledger má alveg eiga það að það verður nánast ómögulegt að toppa þennan Jóker (þó að ég sé reyndar ekki viss um að hann ætti að fá Óskarinn, blessaður)

Svo á Batman endalaust flott dót! Tók andköf og gapti hvað eftir annað. Þegar bíllinn breytti sér í hjól hélt ég að ég yrði ekki eldri; núna veit ég hvernig bílaáhugamönnum og öðrum græjunördum líður 🙂

Færðu inn athugasemd